Dagsetning ferða
Hafið samband ef dagsetningar eða lengd ferðar henta ekki!! Við finnum lausn á því.
Vorferðir 2011 verða frá páskum og fram í maí. Dagsetningar koma von bráðar. Dagsetningar haustferða koma líka á næstu dögum.
Hægt er að ganga í 3-7 daga allt eftir óskum. Verð fer eftir lengd ferðar. Ef flug er á öðrum tíma getur ganga hafist við komu.
Okkur hefur tekist að halda sama verði í Evrum og var 2007 en því miður ekki í íslenskum krónum.
Algengt verð fyrir 3 daga göngu þar sem allt er innifalið, gisting, allur matur og drykkir með kvöldmat, akstur og íslensk leiðsögn er 280-300 € fyrir 3ja daga göngu og fyrir 7 daga gönguferð er algengt verð 695-715€.
Þar sem ferðir geta verið ólíkt uppbyggðar getur verið einhver breytileiki í verði sem byggist á fjölda gistinátta, máltíða, gönguferða og þess háttar. Vinsamlega hafið samband og fáið upplýsingar um verð einstakra ferða.
Við sérsníðum ferðir og dagsetningar að þörfum 6-16 manna hópa
Dagsetningar geta hliðrast ef beint flug frá Íslandi breytist