Fréttir
Dagsferðir í vor
Mánudaginn 18. apríl bjóðum við upp á eins dags gönguferð á Puig Campana, fjallið sem er fyrir vestan Benidorm og er annað hæsta fjall í Alicante fylki. Hugmyndin er að hittast við innganginn að Terra Mitica kl 10 að morgni og vera svo í samfloti að upphafsstað göngunnar. Þetta er gönguferð við flestra hæfi, vegalengd er um 12 km og hækkun um 600 metrar, en við förum ekki upp á topp í þessari ferð. Við gerum ráð fyrir að gangan sjálf taki um 4 klst. og að með nesti og hvíldum ættum við að vera komin niður um kl 16.
Þeir sem vilja koma með þurfa að tilkynna það í póstinn gongufri@gongufri.is eða hringja í síma 0034-649-125-751 i síðasta lagi daginn fyrir brottför. Upplýsingar í síma 895-7100 fram til 15. apríl. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Það sem þarf að vera meðferðis er :
- Nesti ásamt drykkjarvatni (a.m.k. 1 -1,5 l, meira ef heitt er í veðri)
- Góðir gönguskór (gönguslóðir geta verið grýttar og mishæðóttar )
- Hlíðfðarföt (ef hann skyldi rigna).
Verð á mann er 25€, en ókeypis fyrir gönguviljug börn 10-14 ára. Ekki er ráðlegt að fara með yngri börn í þessa göngu. Hægt er að fá tilbúin nestispakka á 8€ ef það er pantað með a.m.k. dags fyrirvara.
Þetta er falleg gönguleið og tilvalið að hvíla sig á mannmergðinni á ströndinni með því að hverfa í faðm fagurra fjalla og fjölbreyttrar náttúru.
Við munum bjóða upp á fleiri dagsferðir ef þetta er áhugaverð dægradvöl fyrir Íslendinga sem dvelja á Spáni um páska og fram í miðjan maí. Vinsamlega hafið samband og/eða kíkið á www.gongufri.is
Dagsetningar
Nýjar dagsetningar eru komnar inn á vefinn okkar fyrir gönguferðir um Páska 2011. Kíkið á næstu ferðir til að fá allar upplýsingar um gönguferðir erlendis í frábæru veðri. Bókið núna og fáið hagstæðasta flugið til Alicante.
Vert er að benda á gott verð á flugi til Alicante frá London með Ryanair og EasyJet